433

Valur og ÍBV unnu stórsigra

Mynd

Tveimur leikjum í Lengjubikar karla er nú lokið en leikið var á Origo vellinum og Laugardal.

Valsmenn voru í stuði í riðli 4 í A-deild en liðið mætti Vestra og vann sannfærandi sigur.

Valsmenn höfðu betur 5-0 á heimavelli þar sem Kristinn Freyr Sigurðsson og Patrick Pedersen gerðu tvennu fyrir heimamenn.

Síðar í dag vann ÍBV öruggan sigur á Víkingi Ólafsvík en spilað var á Eimskipsvellinum.

Markaskorara í þeim leik vantar að svo stöddu.