433

Real gerði jafntefli heima

Mynd

Real Madrid 2-2 Celta Vigo
0-1 Fedor Smolov
1-1 Toni Kroos
2-1 Sergio Ramos(víti)
2-2 Santi Mina

Real Madrid misstókst að vinna mikilvægan sigur á Spáni í kvöld er liðið mætti Celta Vigo á heimavelli.

Real lenti í veseni á Bernabeu en Celta komst yfir með marki frá Fedor Smolov á sjöundu mínútu.

Staðan var 0-1 þar til á 52. mínútu er Toni Kroos jafnaði metin fyrir heimamenn.

Sergio Ramos tókst svo að koma Real yfir úr víti og var staðan 2-1 þar til að fimm mínútur voru eftir.

Santi Mina skoraði þá jöfnunarmark fyrir Celta og lokastaðan 2-2 í Madríd.