433

Suso sendur til Spánar

Mynd

AC Milan hefur staðfest það að vængmaðurinn Suso sé genginn í raðir Sevilla.

Suso hefur verið orðaður við brottför síðustu daga en hann skrifaði undir 18 mánaða samning við félagið.

Spænska félagið getur svo keypt hann í sumar en það fer að sjálfsögðu eftir hvernig hann stendur sig á Spáni.

Suso er 26 ára gamall vængmaður en hann kom til Milan frá Liverpool fyrir fimm árum síðan.

Síðan þá hefur hann leikið fimm landsleiki fyrir Spán og 126 deildarleiki fyrir Milan - í þeim skoraði hann 21 mark.