433

Mourinho: Stærsta afrek ferilsins ef við náum fjórða sæti

Mynd

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, segir að það yrði stærsta afrek ferilsins að ná að enda í fjórða sætinu með Tottenham.

Mourinho og félagar eru í vandræðum þessa dagana en þeir Heung-Min Son og Harry Kane eru meiddir.

Tottenham er þó ekki langt frá fjórða sætinu og situr í fimmta sæti, einu stigi á eftir Chelsea.

„Yrði það að enda í topp fjórum mitt besta afrek? Í þessum kringumstæðum þá er svarið já," sagði Mourinho.

„Sonny og Harry skora flest mörk Tottenham. Ef strákarnir ná fjórða sætinu án þeirra væri það magnað afrek.“