433

Jafnt hjá FH og Gróttu

Mynd

FH 1-1 Grótta
1-0 Óskar Atli Magnússon(víti)
1-1 Kristófer Orri Pétursson(54')

Það fór fram hörkuleikur í Lengjubikar karla í kvöld en leikið var í A-deild mótsins.

FH og Grótta áttust við í Skessunni en viðureigninni lauk með 1-1 jafntefli.

Óskar Atli Magnússon kom FH yfir úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og jafnaði Kristófer Orri Pétursson svo metin fyrir Gróttu.

FH er með sjö stig eftir þrjá leiki og er Grótta með fjögur stig eftir tvo.