433

Haaland getur gert mun betur

Mynd

Erling Haaland, leikmaður Dortmund, var ekki of ánægður með eigin frammistöðu í gær gegn Paris Saint-Germain.

Haaland reyndist þó hetja Dortmund í 2-1 sigri en hann skoraði bæði mörk liðsins í 16-liða úrslitum.

„Ég er ánægður með að hafa verið valinn maður leiksins en ég tel mig geta gert mun betur,“ sagði Haaland.

„Ég verð að spila betur í þessum gæðaflokki og leggja mig mikið fram til að bæta mig.“

„Úrslitin eru ansi hættuleg, PSG er með mjög sterkt lið og getur komið til baka í seinni leiknum.“