Víkingur tók á móti sænska liðinu Djurgarden í fimmta leik sínum í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.
Það var markalaust eftir fremur rólegan fyrri hálfleik, þar sem Víkingar voru þó ívið sterkari aðilinn en tókst ekki að nýta sína sénsa.
Gestirnir komu mun sterkari til leiks inn í seinni hálfleik og kom Keita Kosugi þeim yfir á 62. mínútu.
Staðan varð svo enn snúnari fyrir Víking þegar Gustav Wikheim kom Djurgarden í 0-2 skömmu síðar.
Heimamenn voru þó ekki dauðir úr öllum æðum og Ari Sigurpálsson minnkaði muninn á 72. mínútu. Skömmu síðar fékk Miro Tenho í liði Djurgarden sitt annað gula spjald og staðan orðin allt önnur.
Víkingi tókst þó ekki að nýta sér liðsmuninn og 1-2 tap varð niðurstaðan.
Víkingur er því áfram með 7 stig í Sambandsdeildinni en á enn fínan möguleika á að fara áfram.
Liðið mætir LASK í Austurríki í lokaleik sínum í deildarkeppninni.