433

Hojlund hetja United í Tékklandi - Þægilegt hjá Roma

Mynd
Getty Images

Átta leikjum er lokið það sem af er kvöldi í Evrópudeildinni, en um var að ræða 6. umferð deildarkeppninnar.

Flestra augu voru sennilega í Tékklandi en þar tók Viktoria Plzen á móti Manchester United. Matej Vydra kom heimamönnum þar yfir snemma í seinni hálfleik en Rauðu Djöflunum tókst að snúa leiknum við með tveimur mörkum Rasmus Hojlund, á 62. og 88. mínútu. United er í fimmta sæti með 12 stig.

Roma vann þá þægilegan sigur á Braga á Ítalíu. Lorenzo Pellegrini, Saud Abdulhamid og Mario Hermoso gerðu mörkin.

Úrslit fyrstu leikja kvöldsins
Hoffenheim 0-0 FCSB
Ludogorets 2-2 AZ Alkmaar
Malmö 2-2 Galatasaray
Olympiacos 0-0 Twente
PAOK 5-0 Ferencvaros
Roma 3-0 Braga
Union St. Gilloise 2-1 Nice
Viktoria Plzen 1-2 Manchester United