433

United sagt ætla að reyna við 34 ára varnarmann - Hefur aldrei gengið

Mynd

Manchester United er að íhuga að reyna við varnarmanninn Diego Godin í enn eitt skiptið í sumar.

Frá þessu greina erlendir miðlar í kvöld en Godion kom til Inter Milan frá Atletico Madrid í sumar.

Godin er 34 ára gamall en United reyndi að fá hann í sínar raðir frá Atletico í mörg, mörg ár.

United hefur enn áhuga á að semja við Godin sem er einn allra reynslumesti varnarmaður Evrópu.

Godin er samningsbundinn Inter til ársins 2022 en ólíklegt þykir að hann klári þann samning.