

Undir þennan flokk lyfja flokkast til dæmis Ozempic, Mounjaro og Wegowy, en sjálf hefur Oprah aldrei viljað segja nákvæmlega hvaða lyf hún tekur.
Það breytir kannski ekki öllu enda hefur Oprah, sem er 71 árs, lést töluvert á undanförnum misserum en samhliða notkun lyfsins er hún einnig duglegri að stunda hreyfingu en áður.
Í nýju viðtali sem Daily Mail vitnar til segir Oprah að óvæntir en ánægjulegir fylgikvillar fylgi því að taka lyfið. Þannig er hún steinhætt að neyta áfengis og finnur ekki einu sinni til löngunar í drykk.
Þetta er ekkert einsdæmi því bent er á það í umfjöllun Daily Mail að rannsóknir bendi til þess að Ozempic og sambærileg lyf dragi úr virkni umbunarkerfis heilans sem losar vellíðunarboðefnið dópamín. Sýnt hefur verið fram á að þegar þessi umbunarkerfi eru bæld minnkar löngun í áfengi.
Þá hefur lyfið gert það að verkum að hún fer í ræktina eða stundar hreyfingu á hverjum einasta degi, en það er eitthvað sem hún gerði ekki áður. Þetta gæti tengst því að GLP-1 lyf hjálpa til við að jafna blóðsykur og bæta orkustig líkamans.
Oprah telur að lyfin hafi hjálpað henni að þróa jákvæðara samband við mat og líkamsþyngd sína. „Ég er ekki stöðugt að refsa sjálfri mér,“ sagði hún og bætti við: „Ég þekki varla konuna sem ég er orðin. En hún er hamingjusöm kona.“