433

Spilar með einu stærsta félagi heims en veit ekkert um fótbolta - „Fólk hlær að mér“

Mynd

Marc Andre ter Stegen, markvörður Barcelona, hefur ekki hundsvit á fótbolta en hann greinir sjálfur frá þessu.

Ter Stegen er einn besti markmaður heims en hann fylgist lítið með og þekkir ekki nöfn andstæðingana.

„Fólk hlær þegar ég segi þeim að ég viti ekkert um fótbolta. Ég horfi ekki mikið nema þegar mjög góðir leikir eru á dagskrá,“ sagði Ter Stegen.

„Eða kannski þegar einhver náinn mér er að spila. Stundum spyrja þeir um nöfn á leikmönnum og ég hef ekki hugmynd.“

„Í La Liga til dæmis, þá gerist það með nöfnin. Ég hef ekki hugmynd um hverjir þeir eru.“