433

Macheda sér ekki eftir neinu

Mynd

Fyrrum vonarstjarnan Federico Macheda segist ekki sjá eftir neinu frá tíma hans hjá Manchester United.

Macheda vakti athygli aðeins 17 ára gamall er hann skoraði sigurmark gegn Aston Villa á 93. mínútu á Old Trafford.

Macheda tókst hins vegar aldrei að standast væntingar næstu ár og spilar í dag með Panathinaikos í Grikklandi.

„Ég sé ekki eftir neinu. Manchester United var falleg reynsla fyrir mig ég á enn frábærar minningar þaðan,“ sagði Macheda.

„Það eru minningar sem ég tek með mér hvert sem ég fer. Ég þroskaðist ekki bara sem leikmaður heldur manneskja.“

„Ég mun alltaf halda í þessar minningar þegar ég spilaði fyrir stærsta félag heims.“