433

Myndi læra mikið af Pogba

Mynd

Fede Valverde, leikmaður Real Madrid, segir að hann myndi læra mikið af Paul Pogba ef hann semur við félagið.

Pogba er oft orðaður við Real en hann er talinn vera á óskalista fjölmargra liða í Evrópu.

Frakkinn spilar með Manchester United í dag en margir telja að hann vilji komast burt þaðan sem fyrst.

„Pogba? Ég lifi hljóðlátu lífi. Ég reyni að njóta þess þegar ég set þessa treyju á mig,“ sagði Valverde.

„Ef hann kemur hingað í framtíðinni þá mun ég augljóslega læra mikið af honum sem leikmanni.“