433

Liverpool búið að jafna met Arsenal þegar 11 umferðir eru eftir

Mynd
GettyImages

Liverpool vann 3-2 heimasigur í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en liðið mætti West Ham á Anfield.

Um var að ræða leik í 27. umferð deildarinnar og vann Liverpool sinn 26. sigur á leiktíðinni.

Liverpool er búið að vinna 26 af 27 leikjum og gerði eitt jafntefli við Manchester United í fyrra.

Liverpool er nú búið að vinna jafn marga leiki og Arsenal gerði tímabilið 2003-2004 er liðið vann deildina án þess að tapa.

Liverpool mun klárlega bæta það met á næstunni en það eru enn 11 leikir eftir af deildinni.