433

Lampard: Hef engar áhyggjur af Lewandowski

Mynd
GettyImages

Frank Lampard, stjóri Chelsea, hefur ekki áhyggjur af sóknarmanninum Robert Lewandowski.

Lewandowski er markamaskína Bayern Munchen sem spilar gegn Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar á morgun.

„Ég hef engar áhyggjur af honum. Hann hefur verið svo stöðugur í mörg ár,“ sagði Lampard.

„Hans markatölfræði og allt sem þú sérð er í toppklassa. Ég hef horft á ansi mikið af Bayern og þetta er mjög augljæost.“

„Hann er aðalmaðurinn en þeir eru með mörg vopn. Gæðin okkar verða að hækka í útsláttarkeppninni.“