433

Messi skoraði fjögur

Mynd

Lionel Messi, leikmaður Barcelona, var frábær í kvöld er liðið mætti Eibar í spænsku úrvalsdeildinni.

Messi þarf vart að kynna fyrir lesendum en hann hefur lengi verið einn besti ef ekki besti leikmaður heims.

Messi skoraði fernu í öruggum 5-0 heimasigri Börsunga og þar á meðal þrennu í fyrri hálfleik.

Arthur skoraði svo fimmta mark liðsins á 89. mínútu og var sigur heimamanna aldrei í hættu.

Barcelona er á toppi deildarinnar með 55 stig, tveimur stigum á undan Real Madrid sem á leik til góða.