433

Ferdinand með ráð fyrir Pogba: Segðu honum að þegja

Mynd

Rio Ferdinand, goðsögn Manchester United, segir Paul Pogba að þagga í umboðsmanninum umdeilda, Mino Raiola.

Raiola er sá sem tjáir sig mest um framtíð Pogba en óvíst er hvort hann verði áfram hjá United á þessu ári.

„Meiðsli hafa sett strik í reikninginn en það er pirrandi því hann er hæfileikaríkur leikmaður," sagði Ferdinand.

„Ég held að hann sé meiddur og að Ole Gunnar Solskjær sé að bregðast við því sem er í gangi.“

„Ég myndi segja honum að tjá sig, opnaðu þig og talaðu sem hæst. Segðu umboðsmanninum að þegja, þú tjáir þig og kemur hlutunum á hreint.“

„Þannig vita liðsfélagarnir, stjórinn og stuðningsmennirnir hvað sé í gangi.“