Kínverskur ferðamaður sem var á ferð um Finnland hefur greinst með sýkingu vegna kórónaveirunnar. Heilbrigðisyfirvöld í Finnlandi hafa staðfest þetta en grunur liggur um að 15 manns séu sýktir af veirunni í Finnlandi. Greint er frá þessu í sænskum fjölmiðlum en Vísir greindi frá hér á landi.
Búið er að setja kínverska ferðamanninn í einangrun í Finnlandi en þetta er fyrsta staðfesta tilfellið í Skandinavíu. Ferðamaðurinn er frá borginni Wuhan í Kína, þar sem talið er að veiran eigi upprunna sinn.
Kórónaveiran hefur þegar orðið rúmlega 130 einstaklingum að bana og að minnsta kosti 6.000 hafa veikst af völdum hennar. Sérfræðingar telja að veiran muni halda áfram að valda usla næstu mánuði og telja að enn séu að minnsta kosti átta vikur þar til hægt verður að hefja prófanir á hugsanlegu bóluefni gegn veirunni.
Kórónaveiran hefur dreift sér hrattt um heimsbyggðina tilfelli af veirunni hafa greinst víða í Evrópu. Þá sagði DV frá því fyrr í vikunni að íslenskt par á Spáni hafi verið í einangrun vegna gruns um kórónaveiruna en síðar kom í ljós að parið var ekki sýkt af veirunni.