Hálfu árþúsundi eftir að William Shakespeare orti um íslenska fjárhundinn er hann nú loksins kominn á lista bresku hundaræktunarsamtakanna UK Kennel Club. Þar með er hann orðinn gjaldgengur til að keppa á hinni árlegu hundaleiknikeppni Crufts.
„Svei þér! þú, Íslands eyrnasperrti hundur!“ orti leikskáldið William Shakespeare í leikritinu um Hinrik V konung undir lok sextándu aldar.
Hálfu árþúsundi seinna hefur íslenski fjárhundurinn verið viðurkenndur af UK Kennel Club, virtustu, elstu og stærstu hundaræktarsamtökum Bretlands. Er hann 224. tegundin til að vera viðurkennd af þeim frómu samtökum eins og segir í frétt Telegraph um málið.
Þetta þýðir að þegar ákveðin ræktunarviðmið verða samþykkt mun íslenski fjárhundurinn verða gjaldgengur á hina virtu Crufts keppni sem og aðra viðburði sem haldnir eru af UK Kennel Club. En Crufts hefur verið haldin árlega síðan árið 1891.
Þrátt fyrir hina sögulegu tengingu og þá staðreynd að íslenski fjárhundurinn er yfir þúsund ára gamalt kyn, þá eru afar fáir slíkir til á breskri grundu. Aðeins í kringum 20 dýr samkvæmt frétt Telegraph og sá fyrsti ekki innfluttur fyrr en árið 2017.
Íslenski fjárhundurinn er flokkaður með svokölluðum spitz hundum. Það er með hundum á borð við Husky, Pomeranian og Chow Chow.