Viðari Eggertssyni var misboðið þegar hann horfði á Kryddsíldina í gær. Þar hafi þrír fulltrúar stjórnarandstöðunnar, sem allir hafi gegnt embætti forsætisráðherra, ekki orðið sér til sóma.
Viðar, sem er leikstjóri og fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði færslu um kryddsíldina þar sem hann lætur formenn Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar - þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson, Bjarna Benediktsson og Sigurð Inga Jóhannsson - heyra það.
„Silfurskeiðungar skemmileggja partý með reiðihroka, þeir eru pörupiltar og hrekkjusvín ársins.“
Viðar rekur að gestir kryddsíldar voru formenn flokkanna sem sitja á þingi. Þar með taldar þær Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland sem nýlega mynduðu ríkisstjórn Viðreisnar, Samfylkingar og Flokks fólksins. Með þeim voru fulltrúar stjórnarandstöðunnar, Miðflokks, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, konur í meirihluta og karlar í andstöðu.
„Allir karlarnir eiga að baki endasleppta veru í stóli forsætisráðherra og hrökkluðust frá yfirleitt vegna baktjaldamakks og hneykslismála.Þetta var erfitt að horfa á. Þarna reigðu sig föllnu höfðingjarnir þrír sem auðljóslega töldu að þeir hafi verið bornir til auðs (rétt) og til valda (rangt)! Þeir hjuggu á báðar hendur – bókstaflega – því konunum hafði verið stillt upp á milli þeirra við háborðið. Þeir létu eins og þeir hafi verið rændir völdum af skríl.“
Sérstaklega hafi karlarnir hamast á Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. Af málflutningi Viðars má ráða að honum þyki karlarnir hafa talað niður til Ingu þrátt fyrir að hún sé búin að lyfta grettistaki á þeim tæpa áratug frá því að hún stofnaði flokk sinn.
„Sérstaklega hömuðust þeir með svívirðingum á Ingu og gerðu bókstaflega hróp að henni sem stofnaði stjórnmálaflokk 2016 til að berjast fyrir þá sem verst eru settir. Hún sjálf þá öryrki í öryrkjaíbúð og með lítið á milli handanna eins og margir í þeirri stöðu. Hvað vill hún upp á dekk, óbreytt alþýðukonan?!Hún komst á þing með flokkinn sinn 2017 og hefur verið óþreytandi í að segja silfurskeiðingunum sem hafa stjórnað Íslandi að það hafa það bara alls ekki allir jafn gott í samfélaginu og þeir. Því þó þeir hafi hrópað á móti: „Sjáið þið ekki veisluna?!“ Þá hefur hún óhrædd bent þeim á að hin svokallaða „veisla“ er bara einkapartý milljarðamæringa í Garðabænum.“
Inga er nú komin í ríkisstjórn og orðin ráðherra. En karlarnir samgleðjast henni ekki og sýna henni ekki virðingu. Því sé ekki furða að Inga hafi svarað þeim fullum hálsi.
„Nú er hún komin í valkyrjuríkisstjórn og orðin ráðherra. Í stað þess að samfagna og bera tilhlýðilega virðingu fyrir henni, lá við að þeir misstu sig af reiði og hneykslun á að hún skyldi vera komin þangað sem hún er komin vegna eigin verðleika. Auðvitað varð hún bæði særð og reið og reyndi af fullum mætti að svara fyrir sig.“
Þorgerður Katrín og Kristrún hafi sýnt yfirvegun og verið málefnalegar og hvetjandi. Þær hafi í kryddsíldinni sýnt úr hverju þær eru gerðar og hvers megi vænta af valkyrjustjórninni. Viðar segir að þessir „fúllyndu karlar“ haldi greinilega að þeir eigi Ísland.
„Fallegast var þegar Kristrún forsætisráðherra minnti ákveðið og rólega óknyttadrengina og hrekkjusvínin á að Inga væri fullgildur flokksformaður í ríkisstjórn og nyti trausts og virðingar sem slíkur. Þarna var landsmóðir sem kunni að tala við óuppdregna pörupilta.
Það eru breyttir tímar með rísandi sól!“