
32 ára kona sem hefur starfað sem heimilishjálp á Gran Canaria hefur verið handtekin, grunuð um að stela skartgripum af heimili fjölskyldu í Santa María de Guía.
Canarian Weekly greinir frá.
Konan, sem er frá Sevilla á Spáni, starfaði við að hlúa að öldruðum manneskjum sem búa á heimilinu og naut trausts þeirra og fjölskyldu þeirra. Hún er talin hafa byrjað að stela skartgripum af heimilinu í fyrra og tekið þaðan skartgripi fyrir verðmæti um 10.000 evra, sem er andvirði tæplega einnar og hálfrar milljónar íslenskra króna.
Fyrir utan fjárhagslegt tjón eru skartgripirnir taldir hafa mikið tilfinningalegt gildi fyrir eigendurna.
Konan er talin hafa selt skartgripina en lögreglu hefur tekist að endurheimta lítinn hluta þeirra. Rannsókn málsins heldur áfram.