
Eric Poulin frá Nova Scotia í Kanada er með svokallað sjálfgerjunarheilkenni (e. auto-brewery syndrome), sjaldgæfan sjúkdóm þar sem örverur í meltingarvegi framleiða etanól, hið sama og er í áfengum drykkjum. Afleiðingin er sú að sjúklingurinn getur orðið ölvaður án þess að hafa neytt nokkurs áfengis.
Poulin er ekki sá eini sem þjáist af þessu einkennilega heilkenni því DV fjallaði nýlega um Bandaríkjamanninn Mark Mongiardo sem glímir við sama vandamál.
Sjá einnig: Verður drukkinn án þess að drekka
Poulin segir að hann hafi ítrekað upplifað óhugnanleg köst sem hann man ekkert eftir.
„Börnin sögðu mér frá atvikum þar sem ég var að gráta og sagði að ég væri að fara að deyja. Ég man ekkert af þessu,“ sagði hann í viðtali við CBC í Kanada.
Samkvæmt Cleveland Clinic hafa færri en eitt hundrað tilfelli sjálfgerjunarheilkennis verið skráð í læknisfræðilegum heimildum. Sjúkdómurinn er því bæði sjaldgæfur og lítið rannsakaður, sem gerði greiningu erfiða.
Rahel Zewude læknir, sem hefur meðhöndlað sjúklinga með heilkennið, segir að orsökin sé ójafnvægi í örveruflóru meltingarvegarins.
Einkenni Poulins koma oft fram án fyrirvara og geta meðal annars falist í óskýru tali, áfengislykt af andardrætti og skertri hugsunargetu.
Luke Chen, prófessor við læknadeild Dalhousie-háskóla og sérfræðingur í sjaldgæfum sjúkdómum, hefur aðstoðað Poulin við að fá viðeigandi meðferð og stuðning.
„Þegar greining fæst er ferðalaginu ekki lokið. Þá tekur við leit að réttri meðferð,“ segir Chen.
Algengasta meðferðin við sjálfgerjunarheilkenni felst í lágkolvetnamataræði og lyfjagjöf. Poulin hefur þó reynt hvort tveggja án teljandi árangurs.
Nú er læknateymi hans að kanna möguleikann á meðferð sem felur í sér að hægðaflóra frá heilbrigðum einstaklingi er flutt til hans. Meðferðin yrði veitt í formi hylkja.
Eiginkona hans, Sarah Poulin, hefur fylgst náið með veikindum eiginmannsins og telur líklegt að sjúkdómurinn sé vangreindur hjá mörgum.
Heilkennið hefur haft veruleg áhrif á líf Poulins og hefur hann til dæmis ekki getað stundað vinnu síðan árið 2023. Hann segir óvissuna gera honum erfitt fyrir í foreldrahlutverkinu gagnvart börnum sínum fimm.
„Ég veit aldrei hvernig mér mun líða næsta dag eða jafnvel næstu klukkustund. Það setur miklar skorður á allt sem ég geri – vinnu, fjármál og daglegt líf,“ segir hann.