fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Sérfræðingur segir að þessar fæðutegundir eigi að forðast ef manni er illt í hálsinum

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 11:30

Það er eins gott að hafna boði um áfengi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er aldrei gaman eða gott að fá hálsbólgu en því miður verðum við mörg fyrir því vetur hvern að glíma við slíka óværu. Flestir þekkja eflaust húsráð á borð við að drekka te með hunangi, sítrónuvatn eða bara að sjúga hálstöflur. Þetta hjálpar yfirleitt við að milda einkennin en vissir þú að það eru líka til matvæli sem er skynsamlegt að forðast þegar maður er með hálsbólgu?

Í umfjöllun Lifestyle ao Minuto kemur fram að eftirfarandi fæðutegundir sé rétt að forðast ef maður er með hálsbólgu.

Súr matvæli – Sýran getur ert sýktan háls enn frekar. Veldu frekar milda matar- og drykkjarvörur. Til dæmis mjúka ávexti á borð við banana eða mangó.

Sterkur matur og matur með chili – Það þarf ekki nema smávegis af sterkum mat og chili getur gert hálsbólguna verri.

Stökk matvæli – Það er best að forðast þurr og stökk matvæli því þau rispa og pirra hálsinn enn frekar. Þau virka nánast eins og sandpappír á hann.

Mjög heitur matur og drykkir – Heitur tebolli eða súpa getur linað sársaukann í smá stund en ef þetta er of heitt, þá getur það brennt hálsinn og gert einkennin verri. Drekktu frekar eitthvað volgt.

Áfengi – Alkóhól drepur ekki bakteríurnar sem valda hálsbólgunni. Þvert á móti getur það pirrað hálsinn enn frekar, veikt ónæmiskerfið og valdið ofþornun.

Mjólkurvörur – Kaldar mjólkurvörur geta í fyrstu virst lina einkennin en hjá sumum geta þær gert slímið þykkara og gert okkur erfiðara fyrir við að hreinsa hálsinn.

Koffíndrykkir – Koffín getur haft neikvæð áhrif á svefninn en ónæmiskerfið þarf á honum að halda til að berjast gegn sýkingum. Það er því betra að drekka jurtate.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND