

Knattspyrnumaðurinn Jamie Vardy og eiginkona hans Rebekah urðu fyrir vopnuðu innbroti á heimili sínu á Ítalíu á síðasta ári, en þetta kemur fram í nýjum raunveruleikaþætti um þau.
Í þættinum The Vardys má sjá upptökur úr öryggismyndavélum þar sem grímuklæddir menn með kúbein brjótast inn í húsið og stela skartgripum, úrum og peningum að verðmæti um 80 þúsund punda.
Fjölskyldan var á leik hjá Cremonese þegar innbrotið átti sér stað, en Vardy lék með ítalska félaginu á síðustu leiktíð.

„Ég vissi strax að einhver hafði farið inn og tekið dótið mitt,“ segir Rebekah í þættinum.
Hún segir fimm menn hafa sést á upptökunum og að þeir hafi komist inn um glugga. Meðal þess sem var stolið var dýrt Patek Philippe-úr.
„Ég er á tánum allan sólarhringinn. Svona atvik fær mann til að efast um allt,“ sagði Rebekah einnig í þættinum.
Í kjölfarið ákváðu hjónin að flytja börn sín aftur til Leicester á Englandi, þar sem Vardy spilaði um árabil.
Jamie Vardy yfirgaf síðan Cremonese í vor eftir að félagið féll úr efstu deild. Framtíð hans er óljós.