

Alexandra Briem, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, segir nýja meirihlutann gera dýr mistök með því að gera það kleift að skipa sem varamenn í fagráð fólk sem er hvorki aðal- eða varaborgarfulltrúi. Þar að auki séu það mistök að færa starfsemi Stafræns ráðs undir borgarráð.
Í færslu á Facebook segir hún að það verði kostnaðarsamt að hafa fyrirkomulag fagráða þannig:
„Það eru mistök. Bæði mun það leiða til töluverðrar kostnaðaraukningar, en áður var lang stærstur hluti fundasetu í fagráðum ekki greitt sérstaklega, heldur bara hluti af launum borgarfulltrúa og fyrstu varafulltrúa. Með þessari breytingu fjölgar mjög þeim setum í ráðum sem þarf að greiða sérstaklega fyrir,“ segir hún, þar að auki stækki hópurinn og erfiðara verður að halda utan um verkefnin. „Sérstaklega ef fólk er í mikilvægum hlutverkum, en þarf samt að vera í annarri vinnu og á erfiðara með að mæta á undirbúningsfundi, samráð, stýrihópa eða óundirbúna fundi til að ræða um eitthvað sem upp kemur.“
Alexandra segir það ekki sniðugt að leggja niður Stafrænt ráð. „Hafandi verið formaður bæði Stafræns ráðs og Borgarráðs get ég sagt að þetta eru mikil mistök. Vissulega má deila um það hvort Stafræna ráðið hafi haft næg verkefni. Kannski hefði mátt smækka það, eða minnka í umfangi,“ segir hún. „En lykil-hlutverk þess er að það sé ákveðinn hluti pólitíkurinnar sem bæði skilur verkefnið og er málsvari þess innan kerfisins. Stafræna umbreytingin er flókin, en hún er það öflugasta sem við gerðum til þess að bæta þjónustu og hagræða í rekstri, og það er mikilvægt að einhver skilji það. Og skilji sjónarmið þeirra sem þar starfa, þvert á kerfið, þegar kemur að því af hverju tiltekinn kostnaður eigi heima á stað x fremur en y. Eða af hverju tiltekið verkefni er hreinlega mikilvægt. Nema það eigi að setja töluvert púður af tíma borgarráðs í þetta, þá óttast ég að þetta muni vera mjög slæm breyting.“
Þá nefnir Alexandra að það sé ósanngjarnt að tala um að vera ósammála því að leggja á veggjöld til að fjármagna samgöngusáttmálann, það hafi verið ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna sem hafi viljað það og reynt að gera borgarstjórn meðseka.
„Það er alveg ótrúlega…ógeðslegt einhvern veginn, að nú sé Sjálfstæðisflokkurinn einhvern veginn að stilla sér upp gegn bjargvætti gagnvart einhverju sem kom frá honum sjálfum.“