fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 18:00

Þessi kona náði háum aldri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við lifum á tímum þar sem sífellt meiri áhersla er á að lifa lengi. En hvað er það sem hefur áhrif á ævilengd okkar? Hreyfing í ákveðinn fjölda skipta í viku hverri? Prótínríkur matur? Sólarljós og köld böð?

Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að fyrrnefnd atriði séu ekki afgerandi fyrir hversu lengi við lifum. Það er svolítið annað.

Það er oft sagt að það slíti kvenlíkamanum að eignast börn. Og þeim mun fleiri börn, þeim mun meira álag á líkamann. En niðurstöður finnskrar rannsóknar á tvíburum benda til annars.

Rannsóknin var gerð af vísindamönnum við Háskólann í Helsinki og Minerva Foundation Institute for Medical Research og náði til tæplega 15.000 kvenna.

Konurnar fylltu út spurningaskema árið 1975 og síðan fylgdust vísindamenn með lífshlaupi þeirra. Markmiðið var að rannsaka hvaða áhrif barneignasaga kvennanna, það er hversu mörg börn hver og ein eignaðist og hvenær á lífsleiðinni hún eignaðist þau, tengist líffræðilegu öldrunarferli og ævilengd.

Niðurstöðurnar koma eflaust einhverjum á óvart því samkvæmt þeim, þá lifðu konur, sem eignuðust tvö eða þrjú börn, lengst en þær sem eignuðust ekki barn eða fleiri en fjögur börn lifðu almennt skemur.

En áður en þú ferð að hugleiða hvort þú eigir að eignast fleiri börn í skyndi eða hætta við að eignast fleiri, þá skaltu staldra aðeins við!

Rannsóknin sýnir samhengi en er ekki sönnun fyrir að fjöldi barna hafi áhrif á hvort ævilengdin verði skemmri eða lengri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND