fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Taktu prófið – Þetta eru 10 merki um elliglöp

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 13:30

Alzheimer-sjúkdómurinn er algengasta form heilabilunnar.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir glíma við elliglöp/heilabilun og eflaust hafa ekki allir verið formlega greindir sem þjást af þessum hörmulega sjúkdómi.

Ef þú upplifir að þú, eða einhver þér nákomin, sé farinn að glíma við lélegt minni, talerfiðleika eða einbeitingarskort, þá geta það verið fyrstu einkenni elliglapa.

Margt breytist með aldrinum, sem er ekki óeðlilegt, en eftir því sem Steen Hasselbalch, prófessor, sagði í samtali við B.T. þá eru ákveðin einkenni sem fólk má ekki hunsa.

„Minni yfirsýn er oft eitt fyrsta einkennið sem við sjáum. Á maður í erfiðleikum með að skipuleggja fjölskylduboð? Klúðrast sósan eða sýður maður ekki kartöflurnar? Þetta geta verið einkenni,“ sagði hann.

Hann sagði einnig að annað einkenni sem þurfi að bregðast við sé að minnið verði svo lélegt að maður spyrji ítrekað um það sama eða endurtaki það sama aftur og aftur.

Bandarísku alzheimerssamtökin hafa gert lista yfir 10 breytingar sem geta komið fram hjá fólki vegna elliglapa.

Það er ekki þar með sagt að öll einkennin séu alvarleg en af þú kannast við eitt eða fleiri af þeim, þá er góð hugmynd að panta tíma hjá lækni.

  1. Gleymska – Það er ekkert óeðlilegt við að þurfa að nota minnismiða eða gleyma stefnumóti og muna síðan eftir því seinna. Það er ekki eðlilegt að spyrja ítrekað um það sama eða gleyma einhverju sem maður komst að fyrir skömmu síðan.
  2. Erfiðleikar með að framkvæma vel þekkt verkefni – Það er eðlilegt að þurfa hjálp til að nota nýja tækni. Það er ekki eðlilegt að eiga í vandræðum með að fylgja uppskrift sem maður hefur notað margoft.
  3. Erfiðleikar við að finna orð – Það er eðlilegt að finna ekki rétta orðið öðru hverju. Það er ekki eðlilegt að stoppa í miðju samtali án þess að hafa hugmynd um hvernig maður getur haldið áfram eða með því að kalla hlutina röngu nafni.
  4. Ruglingur á tíma og stað – Það er eðlilegt að vera ekki viss um hvaða vikudagur er. Það er ekki eðlilegt að vita ekki hvort það er vor eða haust, eða að gleyma hvar maður er og hvaðan maður kom.
  5. Skert dómgreind – Það er eðlilegt að taka slæmar ákvarðanir öðru hverju. Það er ekki eðlilegt að fara í sandala á veturna eða láta ítrekað telja sig á að kaupa hluti sem maður augljóslega ekki not fyrir eða efni á.
  6. Erfiðleikar við að hugsa abstrakt – Það er eðlilegt að eiga erfitt með að skilja orðatiltæki eða málshátt. Það er ekki eðlilegt að trúa að mýsnar dansi á borðinu þegar kötturinn er ekki heima.
  7. Erfiðleikar með að finna hluti – Það er eðlilegt að gleyma hvar maður setti fjarstýringuna. Það er ekki eðlilegt að setja gleraugun í ísskápinn eða saka aðra um að stela hlutum sem maður finnur ekki.
  8. Breytingar á skapi og hegðun – Það er eðlilegt að eiga slæman dag eða vera pirraður þegar röskun verður á daglegum venjum. Það er ekki eðlilegt að missa stjórn á sér, fyllast grunsemdum, verða hræddur, reiður eða ringlaður af ástæðulausu.
  9. Persónuleikabreytingar – Það er eðlilegt að skipta um skoðun með tímanum og geta beðist afsökunar ef maður fór yfir strikið. Það er ekki eðlilegt að segja allt, sem maður hugsar, án þess að taka tillit til tilfinninga annarra.
  10. Skortur á frumkvæði– Það er eðlilegt að stundum sé maður þreyttur á vinnunni, fjölskyldunni eða félagslegum kvöðum. Það er ekki eðlilegt að hætta að stunda frístundir, sækja samkomur eða íþróttir sem maður nýtur þess venjulega að stunda.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman