
Konan sem um ræðir, hin 37 ára gamla Vanessa O’Rourke, var áður búsett í Harleysville í Pennsylvaníu en samkvæmt FBI er síðast vitað um ferðir hennar í Queensland í Ástralíu.
Árið 2018 var gefin út handtökuskipun á hendur O’Rourke eftir að hún var ákærð fyrir netsvik í Pennsylvaníu.
Yfirvöld segja að O’Rourke hafi haldið því fram við fjölskyldu sína og vini að hún hefði greinst með glíóblastóma sem er eitt alvarlegasta form heilaæxla. Í kjölfarið hafi hún hrint af stað söfnun vegna læknismeðferðar og framfærslu í veikindunum.
Samkvæmt rannsókn málsins sagði hún nánum aðstandendum sínum á árunum 2015 og 2016 að hún þyrfti að ferðast til Ástralíu til að gangast undir tilraunameðferð. Fjölskylda hennar og vinir söfnuðu fé til að standa straum af kostnaðinum.
FBI heldur því hins vegar fram að þegar O’Rourke hafi komið til Ástralíu hafi hún ekki fengið neina læknismeðferð. Þess í stað hafi hún tekið þátt í ýmiss konar skemmtunum og notið frítíma síns þar í landi.
Eftir að hún sneri heim til Bandaríkjanna er hún sögð hafa fengið fjölskyldu og vini til að skipuleggja tvær fjáröflunarsafnanir fyrir sína hönd, annars vegar á netinu og hins vegar á veitingastað í Pennsylvaníu.
Yfir 140 einstaklingar lögðu inn samtals 11.740 Bandaríkjadali, jafnvirði um 1,6 milljóna íslenskra króna á núvirði, til söfnunarinnar í gegnum GoFundMe-síðuna.
William McSwain, fyrrverandi alríkissaksóknari í Pennsylvaníu, lýsti ásökununum sem „ógeðfelldum“ þegar fyrst var greint frá málinu árið 2020. Hún hafi misnotað sér góðvild fólks sem vildi hjálpa einstaklingi í neyð.
Michael J. Driscoll, yfirmaður FBI í Fíladelfíu, tók í sama streng og sagði forkastanlegt að nýta sér samúð fólks með því að ljúga um alvarleg veikindi.
FBI biður alla þá sem kunna að hafa upplýsingar um dvalarstað O’Rourke að hafa samband við næstu skrifstofu stofnunarinnar eða bandarískt sendiráð.