
Farþegi hjá Delta flugfélaginu heldur því fram að hún hafi komið flugfélaginu á óvart með því að nota Apple AirTag sem sýndi að taskan hennar var ekki þar sem flugfélagið sagði töskuna vera. Farþeginn birti færslu um málið í janúar, en fyrir nokkrum dögum var hún birt á Reddit þar sem hún hefur vakið mikla athygli.
„Flugfélög hljóta að hata Airtag,“ segir Ami Bruni í upphaflegri færslu sinni á X, sem yfir átta milljónir hafa lesið. „Töskurnar mínar týndust í gær og þetta er þriðja símtalið mitt við flugfélagið þar sem þau reyna að ljúga um hvar taskan mín er og ég get bara sagt: nei, það er alls ekki satt.“
Ég er 100% sannfærð um að ef ég væri ekki að rekja töskurnar mínar, þá væri ekki nærri eins mikil fyrirhöfn að finna þær og fá þær afhentar,“ bætti hún við í seinni færslunni.

Í þeirri færslu hélt Bruni því fram að vandamálið lægi í farangursafhendingarkerfinu, þar sem flugfélög úthluta týndum farangri til þriðja aðila sem senda hann svo þeir geti, að hennar sögn, þvegið hendur sínar af týnda farangrinum.
Færsla hennar vakti fjölda sagna frá Reddit-notendum sem einnig notuðu AirTags til að rekja týndar ferðatöskur. Ferðamaður einn sagðist agndofa yfir því að 9.000 dollara kappaksturshjól hans hefði ferðast 5.000 mílur í „gagnstæða átt“ frá áfangastað sínum og farið í gegnum fjóra mismunandi flugvelli áður en það lenti í öðru landi.
Sem betur fer gátu þau fylgst með hverri hreyfingu hjólsins og eftir að hafa krafist þess fannst hjólið „á bak við nokkra kassa í herbergi sem á ekki að geyma farangur farþega“. „Það var strax sent með hraðboði beint á hótelið mitt í Madríd morguninn eftir,“ sagði Reddit-notandinn.
„Mun aldrei fljúga án Airtag,“ sagði annar ferðamaður. „Flugfélagið „týndi“ farangrinum mínum eftir að við lentum. Þau vildu að ég myndi leggja fram kröfu í röð sem var um 10 manns á breidd. Airtag-ið sagði mér að taskan væri á öðru farangursbelti gegnt þar sem það átti að koma út.“

Einn benti á að klúður farangursmeðhöndlun væri vegna mannlegra mistaka en ekki vegna þess að flugfélagið væri að reyna að blekkja fólk.
„Ég sver að sumir halda að það sé leynilegur hópur flugfélagastarfsmanna sem er að reyna að valda þeim óþægindum. Við erum að tala um að einhver er að skanna litla strikamerkið af töskunni þinni á mismunandi stöðum. Sú hugmynd að starfsmenn myndu „ljúga opinskátt“ að einhverjum um eitthvað sem viðkomandi getur bókstaflega flett upp í appinu sínu og ég síðan „hata“ að viðkomandi hafi gert mér vinnuna auðveldari með því að setja merkimiða í farangurinn þeirra er svo ógeðsleg.“
Margir tóku undir og sögðu flugfélög fagna AirTags þar sem þau auðveldi þeim vinnuna þegar farangur týnist.
