fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fréttir

Hrafnhildur lýsir reynslu sinni á leigumarkaði – „Sá fermetrafjöldi sem við höfum efni á að leigja fer sífellt minnkandi“

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 2. júní 2026 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir, verkefnastjóri, ráðgjafi og söngkona, lýsir reynslu sinni á leigumarkaði, en hún stendur ásamt fjölskyldu sinni enn og aftur í þeirri stöðu að vera að leita að íbúð til leigu.

Hrafnhildur rekur aðdraganda þess að hún fór á leigumarkað, en í miðju hruni stóð hún í byggingarframkvæmdum ásamt þáverandi eiginmanni sínum og ætlaði sér að búa í því húsi um ókomna tíð.

„Það fór hins vegar svo að leiðir okkar hjóna skildu og ekki bjuggum við í húsinu lengur en rúm tvö ár. Lífið er stundum hverfult. Í kjölfarið urðum við því að selja húsið okkar á verði sem var 10 milljónum undir byggingarkostnaði, sem varð til þess að við duttum út af húsnæðismarkaði aftur.“

Hefur kynnst öllu því góða og slæma á leigumarkaði

Hrafnhildur fór því á leigumarkað árið 2011 og segir hún í færslu sinni á Facebook að hún hafi kynnst öllu því góða og slæma sem leigumarkaðurinn býður upp á.

„Að vera á leigumarkaði á Íslandi er erfitt af ýmsum ástæðum, þá sérstaklega vegna þess að það getur verið mjög erfitt að fá gott húsnæði, á hagstæðum kjörum til lengri tíma. Yfirleitt er bara boðið upp á eins árs samning sem er afar streituvaldandi fyrir fólk, því öryggið er ekkert. Það er erfitt að þurfa sífellt að pakka saman og flytja, ná hvergi að skjóta rótum. Sérstaklega fyrir barnafólk sem þarf að flytja á milli skólahverfa, og þarf því að velja hvort börnin skipta um skóla eða hvort ofan á álagið bætast skult í skóla um lengri veg.Ef þú átt gæludýr ertu alltaf í óvissu um hvort þú fáir að hafa þau með þér. Það að þurfa að skilja við bestu vinina á þann hátt skapar einnig streitu.“

19 ára dóttir hefur búið á 16 stöðum

Í samtali við DV segir Hrafnhildur að þau séu þrjú í fjölskyldunni, hún, eiginmaður hennar og 19 ára dóttir hennar. Þau séu búsett á höfuðborgarsvæðinu.

„Stelpan er á nítjánda ári. Hún er búin að flytja 16 sinnum á sinni ævi. Pabbi hennar er á leigumarkaði líka svo þetta eru hans flutningar líka.“

Hrafnhildur segir verðlag á leigumarkaði einnig vera álagspunkt, því í hvert skipti sem leigjandi þarf að skipta um húsnæði veit hann að leiguverð hefur hækkað. Rekur hún nokkur dæmi um síðustu íbúðir sem hún hefur leigt, fimm íbúðir á síðustu sex árum:

„Fyrir sex árum leigði ég 80 fm íbúð á fínum stað í Kópavogi á 200.000 plús hita og rafmagnskostnað. Ég hafði þá leigu í tvö ár en þurfti svo að færa mig um set. Þá fór ég í 73 fm íbúð á svipuðum stað og borgaði fyrir það 230.000 plús hita og rafmagn, ég hafði þá leigu í rúmt ár og þurfti svo aftur að færa mig.

Næst datt ég í lukkupottinn því ég fékk 100 fm einbýli leigt á 270 (plús kostnað), þar var reyndar músagangur en við græjuðum það! Þar gátum við verið í ár áður en við þurftum að flytja. Við færðum okkur í 73 fm íbúð sem við leigðum einnig á 270 þúsund (með hita og rafmagni inniföldu) og vorum þar í 1 og háflt ár. Þaðan fórum við í neðri hæð á tvíbýli, 115 fm rétt utan við bæinn sem kostaði 330 þúsund með hita og rafmagni inniföldu. Þar stoppuðum við stutt við út af dottlu og erum nú að reyna að finna okkur heimili sem hentar þriggja manna fjölskyldu og hundi.“

Þarf að eiga 1.480.000 kr. til að leigja íbúð í Hlíðunum

Hrafnhildur telur einnig upp dæmi um íbúðir sem hún hefur skoðað undanfarið:

„Ég get sagt ykkur að oft hefur þetta verið slæmt, en nú er leigumarkaðurinn algjörlega búinn að missa vitið!

Ég skoðaði 65 fm íbúð í Garðabæ sem átti að leigjast á 310 þúsund plús rafmagnskostnað. Ég spurðist fyrir um leiguverð á 80 fm íbúð í Hlíðunum, 370 þúsund plús hiti og rafmagn og 3 mánaða bankatrygging! Það þýðir að ef ég ætla að leigja íbúð sem kostar 370.000 á mánuði, þarf ég að eiga 1.110.000 inn á bankabók sem bankinn lokar og tekur handveð í OG svo þarf ég líka að eiga fyrstu leigugreiðsluna.“

Hafa búið á 9 stöðum síðustu 12 ár

Þannig að til að byrja að leigja síðasttöldu íbúðina þarf Hrafnhildur að eiga 1.480.000 kr. Þá er ekki meðtalinn kostnaðurinn við að flytja.

Segir Hrafnhildur í samtali við DV að þau hjónin hafi búið á níu stöðum á 12 árum.

„Höfum bara í einu tilfelli sagt upp samningi sjálf. Eigendur hafa þá selt eða komið til baka í sínar íbúðir.“

Leigjendur upplifa sig sem annars flokks meðan verktakar byggja íbúðir sem enginn hefur efni á að kaupa

Hrafnhildur segir leigjendur smám saman ekki hafa efni á að búa á svæðunum sem þeir vilji búa á „og sá fermetrafjöldi sem við höfum efni á að leigja fer sífellt minnkandi.“

Hún segir afar lítið gerast í málefnum leigjenda og þeir séu margir hverjir farnir að upplifa sig sem annars flokks fólk sem er smám saman ýtt út af höfuðborgarsvæðinu.

„Á meðan byggja verktakar íbúðir sem enginn hefur efni á að kaupa, já nema þá kannski fólk sem ætlar sér svo að leigja þær út á leiguverði sem er nógu hátt til að greiða himinháar afborganir af íbúðunum.“

Segist Hrafnhildur stundum velta því fyrir sér hvort það sé sanngjarnt að leigjendur sitji uppi með að greiða kaup fjárfesta á íbúðarhúsnæði á meðan að áhætta fjárfesta er nánast engin.

Að lokum telur Hrafnhildur upp nokkrar staðreyndir um leiguhúsnæði:

„Leigufélög eru engin lausn á meðan að þau eru hagnaðardrifin. Og enginn (eða afar fáir) virðast vera í þeim business að reka óhagnaðardrifna leigustarfsemi. Ekkert þak er á leiguverði.  Engin regla er um hversu hárra trygginga má krefjast. Þó lögum um gæludýrahald í fjölbýli hafi verið breytt, geta leigusalar ennþá ákveðið að leyfa ekki dýrahald í sínum eignum. Ég gæti talið upp svo margt fleira, en ég hreinlega bara nenni því ekki.“

Segist hún einnig geta talið upp öll kaupúrræðin sem eru í boði en „við pössum ekki í vegna þess að við erum of gömul, of ung, of tekjuhá, of tekjulág, erum ekki að kaupa fyrstu eign, eigum ekki útborgun, erum dökkhærð, ekki í réttum BMI stuðli og með of háan blóðþrýsting….en ég nenni því ekki heldur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert

Sigurður Fannar var andlega kvalinn og átti erfitt með að horfast í augu við það sem hann hafði gert
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni

190 verkefni á verkefnalista meirihluta borgarstjórnar – Þessu ætlar hann að breyta í borginni
Fréttir
Í gær

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“

Stefán kennari biðlar til nýja meirihlutans: „Hnekkið þessari ákvörðun STRAX!“
Fréttir
Í gær

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“

Þetta verður síðasti opnunardagur Kjötborgar – „Takk!“