fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Lét lífið í slagsmálum á næturklúbbi í Tenerife

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 17:00

Mynd: Policia Nacional

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

37 ára gamall breskur maður lést eftir heiftarleg slagsmál á næturklúbbi á Amerísku ströndinni í suðurhluta Tenerife.

Atvikið varð á fimmtudagsnóttina í síðustu viku en 23 gamall Breti er í haldi lögreglu, grunaður um að hafa banað samlanda sínum.

Í frétt Canarian Weekly kemur fram að starfsfólk næturklúbbsins, sem staðsettur er á vinsælu næturlífssvæði, Las Veronicas, hafi gripið inn í átökin og yfirbugað árásarmanninn unga. Lögregla og sjúkralið komu á vettvang en ítrekaðar endurlífgunartilraunir á brotaþola báru ekki árangur og var maðurinn úrskurðaður látinn á vettvangi.

Rannsókn málsins er í fullum gangi en sem fyrr segir er hinn grunaði í haldi lögreglu.

Veronicas-gatan hefur haft fremur slæmt orð á sér og hafa eigendur fyrirtækja á svæðinu reynt að efla orðspor þess í samvinnu við lögreglu sem hefur t.d. gert átak gegn vasajófnaði og fíkniefnasölu.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er hið rétta nafn JD Vance – Þess vegna hefur hann breytt því fjórum sinnum

Þetta er hið rétta nafn JD Vance – Þess vegna hefur hann breytt því fjórum sinnum
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt