fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Pressan

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 06:00

Michael Jackson með lögmanni sínum, Mark Geragos, árið 2004. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mark Geragos, einn þekktasti sakamálalögmaður Bandaríkjanna, segist sjá eftir því að hafa barist gegn því að myndavélum yrði hleypt inn í réttarsalinn þegar réttarhöld yfir Michael Jackson og Scott Peterson fóru fram á sínum tíma.

Geragos ræddi málið á ráðstefnunni CrimeCon 2026 í Las Vegas um helgina. Þar sagði hann að skortur á myndbandsupptökum úr réttarsalnum hefði haft veruleg áhrif á hvernig almenningur skynjaði skjólstæðinga hans.

„Það voru engar myndavélar í réttarsalnum. Ég hef alltaf sagt að það versta sem ég gerði í máli Scott Petersons, og ég myndi segja það sama um Michael Jackson, var að það voru engar myndavélar í réttarsalnum,“ sagði Geragos.

Að hans sögn fékk almenningur upplýsingar um málin að mestu í gegnum fjölmiðlaumfjöllun og umræður utan dómshússins. Það hafi skapað skakka mynd af sakborningunum.

Scott Peterson var árið 2004 sakfelldur fyrir morðið á eiginkonu sinni, Laci Peterson, og ófæddu barni þeirra, Conner. Hann var upphaflega dæmdur til dauða, en síðar var dómnum breytt í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.

Sjá einnig: Jólamorðið – Af hverju myrti hann Laci?

Michael Jackson var hins vegar sýknaður árið 2005 af ákærum um kynferðisbrot gegn 13 ára dreng.

Geragos heldur því enn fram að Peterson sé saklaus. Hann lét þau orð falla á ráðstefnunni að fangelsisvist fyrrverandi skjólstæðings síns væri eitt af því sem héldi fyrir honum vöku á nóttunni.

„Fólk spyr mig oft hvernig ég geti sofið á nóttunni miðað við það sem ég geri. Það sem heldur mér vakandi er þegar ég tel að ég sé að verja saklausan skjólstæðing. Þá missi ég svefninn,“ sagði hann.

Ummælin komu fram í aðdraganda nýrrar heimildarmyndar frá A&E um Peterson-málið sem verður frumsýnd í júlí.

Mál Petersons hefur verið reglulega verið í umræðunni vestanhafs og sérstaklega eftir að samtökin Innocence Project í Los Angeles ákváðu að taka það til skoðunar árið 2024.

Samtökin halda því fram að lögreglan í Modesto hafi ekki rannsakað allar mögulegar vísbendingar, þar á meðal lýsingar sjónarvotta og innbrot sem átti sér stað nálægt heimili Peterson-hjónanna. Einnig hafi ákveðin DNA-gögn aldrei verið rannsökuð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Verður ölvaður án þess að drekka áfengi – sjaldgæfur sjúkdómur kollvarpar lífi fjölskylduföður

Verður ölvaður án þess að drekka áfengi – sjaldgæfur sjúkdómur kollvarpar lífi fjölskylduföður
Pressan
Í gær

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit