fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Pressan

Fundu lík í tengslum við röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalla meðal bandarískra vísindamanna

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nokkur fjöldi vísindamanna og herforingja hefur ýmist horfið eða látið lífið við grunsamlegar aðstæður í Bandaríkjunum undanfarin misseri. Þessir einstaklingar eiga það helst sameiginlegt að hafa haft aðgang að viðkvæmum trúnaðarupplýsingum sem teljast varða þjóðaröryggi. Staðan hefur valdið því að ýmsar samsæriskenningar eru komnar á flug, svo sem að hér sé um að ræða einstaklinga með vitneskju um geimverur eða að óvinaríki Bandaríkjanna hafi banað eða rænt þessum einstaklingum vegna þekkingar þeirra.

Meðal þeirra sem hurfu var Melissa Casias sem hvarf í júní á síðasta ári. Hún starfaði við rannsóknarstöð í Los Alamos í Nýju Mexíkó þar sem fyrsta kjarnorkusprengjan var þróuð. Nú liggur fyrir að Melissa er látin eftir að göngugarpur fann líkamsleifar hennar fyrir tæpri viku síðan, þann 28. maí, í Carson-þjóðskóginum. Dánarorsök hefur ekki verið opinberuð en samkvæmt lögreglunni fannst skammbyssa á vettvangi.

Melissa var 53 ára gömul þegar hún hvarf þann 26. júní árið 2025. Hvarfið þótti strax dularfullt. Hún hafði ekki boðað forföll í vinnu og virðist hafa yfirgefið heimili sitt án þess að taka með sér farsíma eða húslykla. Það sem gerði málið enn skuggalegra er að farsími hennar hafði verið endurstilltur á verksmiðjustillingu (e. factory reset). Eiginmaður hennar, Mark Casias, hefur þó greint frá því að kona hans hafi verið undir miklu álagi þegar hún hvarf. Hjónin unnu saman á rannsóknarstöðinni og morguninn sem Melissa hvarf skutlaði hún manni sínum til vinnu en sagðist þjálf þurfa að mæta á aðra starfstöð. Hún skilaði sér þó aldrei í vinnuna. Lík hennar fannst um 10 kílómetrum frá heimili hennar.

Á annan tug vísindamanna, opinberra starfsmanna og verktaka hjá ríkinu hafa horfið eða verið myrtir frá árinu 2022. Alríkislögreglan FBI er með málið til rannsóknar og kannar meðal annars hvort að tengsl hafi verið milli þessara einstaklinga.

Sjá einnig: Standa á gati eftir röð dularfullra mannshvarfa og dauðsfalls meðal vísindamanna og herforingja – Óttast að skýringanna sé að leita í geimnum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku

Verjandi Michael Jackson og Scott Peterson nefnir stærstu eftirsjána – Þetta er það sem heldur fyrir honum vöku
Pressan
Í gær

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein

Emily missti næstum forsjá vegna hársýnis – Sérfræðingar óttast að hún sé ekki ein
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi

Sérfræðingur segir að eitthvað sé að breytast í Rússlandi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna

Eyjan sem enginn má heimsækja: Kölluð hættulegasti staður Bandaríkjanna
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt

Ný rannsókn sýnir að þær konur sem lifa lengst eiga þetta sameiginlegt
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit