fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Sérfræðingur segir að það hafi þessi áhrif á líkamann ef maður hættir að tannbursta sig

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 20:30

Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við vitum öll að það er mjög mikilvægt að tannbursta sig til að tryggja góða tannheilsu og minnka líkurnar á að fá holur. En ef maður sleppir því að tannbursta sig, þá getur það haft keðjuverkandi áhrif í líkamanum og maður tekur ekki eftir þeim fyrr en það er um seinan.

Við höfum örugglega flest lent í því að vera mjög þreytt að kvöldi og skyndilega virðast þessar tvær mínútur, sem það tekur að tannbursta sig, vera óyfirstíganlegar og maður hugsar með sér: „Það er örugglega í lagi að sleppa þessu í kvöld.“

En það að sleppa því að tannbursta sig, getur hrundið keðjuverkun af stað sem maður finnur ekki fyrir fyrr en það er um seinan.

Tannburstun er ekki bara venja, hún er fyrsta varnarlínan gegn sjúkdómum. Þegar þú sleppir því að bursta tennurnar, þá komast bakteríurnar á skrið.

Eftir sólarhring geta þær byrjað að mynda tannstein og hann getur bara tannlæknirinn fjarlægt. Um leið berast bakteríurnar sér niður í tannholdið og valda sýkingu. Nyheder24 skýra frá þessu.

En bakteríurnar stoppa ekki í tannholdinu. Samkvæmt rannsóknum, til dæmis frá Fatima Khan og Hiren Bhatt, þá geta bakteríurnar farið neðar í líkamann. Þær geta haft áhrif á þarmaflóruna, veikt ónæmiskerfið og í versta falli komist í blóðrásina. Ef þær komast þangað geta þær aukið hættuna á allt frá hjarta- og æðasjúkdómum til heilablóðfalls.

Leti við að tannbursta getur því haft miklu meiri áhrif en bara andfýlu og gular tennur. Líkaminn er ein heild og bakteríurnar í munninum fá greiðan aðgang að líkamanum ef  maður tannburstar ekki.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND