fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Pressan

Ótrúlegt myndband: Gekk grunlaus eftir gangstéttinni – andartaki síðar var hún horfin

Pressan
Þriðjudaginn 2. júní 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

31 árs kona slasaðist þegar hún féll niður í holræsi úti á götu í Rio de Janeiro í Brasilíu á sunnudagsmorgun. Atvikið náðist á öryggismyndavél og hefur vakið mikla athygli.

Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að tveir menn höfðu átt við lokið á holræsinu aðeins nokkrum klukkustundum áður.

Á myndskeiðinu sést konan stíga af mótorhjóli á leið til vinnu og ganga eftir gangstétt á meðan hún horfir á farsímann sinn. Þegar hún stígur á lokið gefur það sig skyndilega og er engu líkara en að jörðin gleypi hana.

Ökumaður bifhjóls sem hafði skutlað henni á staðinn brást fljótt við og kom henni til aðstoðar. Konan var flutt á sjúkrahús þar sem hún fékk meðferð vegna áverka sem munu ekki vera lífshættulegir.

Sem fyrr segir sáust tveir menn eiga við lokið um nóttina og leikur grunur á að þeir hafi ætlað að stela því. Það tókst hins vegar ekki og reyndi annar þeirra að setja það á sinn stað en tókst ekki að festa það með öruggum hætti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Þetta er hið rétta nafn JD Vance – Þess vegna hefur hann breytt því fjórum sinnum

Þetta er hið rétta nafn JD Vance – Þess vegna hefur hann breytt því fjórum sinnum
Pressan
Fyrir 23 klukkutímum

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt

Karlar eru líklegri til að fá ákveðnar tegundir krabbameins – Vísindamaður telur að okkur yfirsjáist svolítið mikilvægt