fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Vendingar í máli læknisins sem var sakaður um að eitra fyrir manni sínum

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mál húðsjúkdómalæknisins Yue „Emily“ Yu vakti mikla athygli árið 2023 eftir að hún var ákærð fyrir að eitra fyrir eiginmanni sínum með stíflueyði.

Samkvæmt ákæru átti Emily að hafa í þrígang blandað stíflueyði í te sem hún færði eiginmanni sínum. Eiginmaðurinn, Jack Chen, byrjaði að gruna konu sína um græsku eftir að hann fékk magasár og hafði á sama tíma tekið eftir því að teið hans bragðaðist öðruvísi en áður. Kom hann því fyrir eftirlitsmyndavélum í eldhúsinu og stóð Emily þannig að verki.

Á upptöku mátti sjá Emily, sem þá var 45 ára, blanda stífueyðinum Dreno í teið.

Sjá einnig: Grunuð um að hafa sett stíflueyði í te eiginmannsins

Nú hafa vendingar átt sér stað í málinu, en því var á föstudaginn vísað frá dómi eftir að í ljós kom að ákæruvaldið hafði leynt mikilvægum upplýsingum.

Að sögn verjenda Emily er hún fegin að málinu sé lokið.

„Hún vill bara halda lífi sínu áfram. Hún hefur ekki getað starfað sem læknir síðan málið kom upp og það hefur verið henni þungbært og auk þess hefur henni verið meinað að hitta börn sín. Við erum þakklát að dómari gaumgæfði ferlið á bak við þessa ákæru og viðurkenndi að málinu væri verulega ábótavant. Emily Yu hefði aldrei átt að vera ákærð. Hún hefur frá upphafi haldið því fram að hún hafi ekki gert nokkuð rangt og treyst á réttláta og sanngjarna málsmeðferð.“

Saksóknarinn Kimberly Edds segir þó að málinu sé ekki lokið. Ákæra verði gefin út að nýju enda mikilvægt að fyrrverandi eiginmaður Emily njóti sannmælis.

„Við trúum á styrk sönnunargagnanna í þessu máli og á fagleg vinnubrögð saksóknara okkar,“ sagði hún. „Við munum halda áfram að reka þetta mál fyrir dómstólum í leit okkar að réttlæti fyrir einstakling sem var markvisst eitrað fyrir af eiginkonu sinni, heilbrigðisstarfsmanni sem var staðráðinn í að valda honum kvölum.“

Emily hefur haldið því fram að eiginmaður hennar hafi haft hana fyrir rangri sök til að ná höggi á henni í forsjár- og skilnaðardeilum þeirra. Myndbandið sýni hana hella stíflueyði í tebolla en það eigi sér eðlilega skýringu. Hún hafi verið að útbúa gildru fyrir maura að beiðni eiginmannsins. Jack hafi svo komið inn í eldhúsið og fengið sér sopa úr bollanum, þrátt fyrir að vita að í honum var stíflueyðir.

Sjá einnig: Eiginkonan segist hafa gengið í ótrúlega gildru í miðjum skilnaði

People greinir frá. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND