fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Sérfræðingar segja að þessi tæki megi aldrei tengja við fjöltengi

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 16:30

Það má ekki setja hvað sem er í samband við fjöltengi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjöltengi eru líklega til á öllum heimilum og eru oft notuð sem einföld lausn þegar það er ekki nóg af innstungum. Þetta gerir lífið auðveldara en um leið felur þetta ákveðna hættu í sér sem mörgum yfirsést.

Margir sérfræðingar segja að röng notkun fjöltengja geti orsakað upphitun og í versta tilfelli eldsvoða.

Vandinn kemur aðallega upp þegar fleiri tæki, sem þurfa mikið rafmagn, eru í sambandi við fjöltengið en það þolir.

Rafmagnsfrek tæki

Grundvallarráðlegging er að tæki, sem nota mikið rafmagn, séu tengd beint í innstungu. Meðal slíkra tækja eru hitarar og loftkælingar og þau á aldrei að tengja við fjöltengi.

Það er líka rétt að vera á varðbergi í eldhúsinu. Örbylgjuofnar, brauðristar og kaffivélar geta notað mikið rafmagn, meira en fjöltengi geta borið.

Ísskápar og frystar eru einnig meðal þeirra tækja sem ættu að vera tengd beint við innstungu því þjöppurnar í þeim vinna stanslaust.

Algeng mistök

Ein algengustu mistökin sem fólk gerir er að tengja fjöltengi saman. Þetta eykur hættuna á ofálagi og getur valdið tjóni á bæði leiðslum og tækjunum sem eru tengd við fjöltengin.

Hárblásarar og önnur hitagefandi tæki eru sérstaklega hættuleg þegar þau eru notuð í röku rými. Blanda mikils hita og raka getur aukið hættuna á að fá rafstuð eða að tækin ofhitni.

Þessi tæki eru fjöltengi ætluð fyrir

Fjöltengi eru hönnuð fyrir tæki sem nota lítið rafmagn. Þetta á til dæmis við umhleðslutæki, lampa og tölvur.

Þegar fjöltengi eru notuð á réttan hátt, þá eru þau örugg og góð lausn.

Það á alltaf að taka merki um ofálag alvarlega. Fjöltengi, sem virðist heitt eða brunalykt kemur frá, á alltaf að taka samstundis úr notkun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman