
Chow, 61 árs gamall, skaut Carmack-Belton í bakið eftir að hafa elt hann frá smávöruverslun sinni í borginni Columbia. Hann hélt því fram fyrir dómi að hann hefði gripið til vopns til að verja son sinn.
Málið vakti mikla athygli í Richland-sýslu þar sem nær helmingur íbúa er af afrísk-amerískum uppruna. Olli dauði drengsins mikilli sorg og reiði í samfélaginu og varð tilefni umfangsmikillar umræðu um vopnaburð, sjálfsvörn og kynþáttamál.
Sterkar tilfinningar brutust út í dómsalnum þegar niðurstaða kviðdómsins var kynnt. Fjölskylda Carmack-Belton brast í grát, á meðan Chow sat hljóður og laut höfði eftir að sýknudómurinn var kveðinn upp.
Saksóknarar og verjendur tefldu fram gjörólíkum frásögnum af atburðarásinni. Saksóknarar héldu því fram að Chow hefði brugðist við af reiði eftir að hafa ranglega talið að drengurinn hefði stolið fjórum vatnsflöskum úr versluninni. Að þeirra mati hefði hann elt Carmack-Belton rúmlega 130 metra frá versluninni áður en hann skaut hann.
Verjendur hans sögðu hins vegar að Chow hefði óttast um öryggi sonar síns eftir að Carmack-Belton hefði beint skammbyssu að honum. „Þetta mál snýst ekki um búðarþjóf. Þetta mál snýst um föður sem sér byssu beint að syni sínum og þarf að taka ákvörðun,“ sagði verjandinn Shaun Kent í lokaávarpi sínu.
Óumdeilt var að Carmack-Belton var með hálfsjálfvirka skammbyssu þegar atvikið átti sér stað. Saksóknarar héldu því þó fram að byssan hefði fallið til jarðar meðan á eftirförinni stóð og að drengurinn hefði aldrei ógnað neinum með henni.
Byron E. Gipson, saksóknari í málinu, sagði fyrir dómi að Chow hefði elt barnið niður götuna og skotið það í bakið. Hann lagði vatnsflösku fyrir framan kviðdóminn í lokaávarpi sínu og hélt því fram að Chow hefði metið verðmæti vatnsflöskunnar meira en líf unga drengsins.
Saksóknarar bentu jafnframt á að vitni hefðu ekki séð Carmack-Belton beina byssu að neinum meðan hann hljóp frá versluninni. Að sögn Gipson voru einu vitnin sem héldu fram að slíkt hefði gerst úr fjölskyldu Chow.