fbpx
Laugardagur 13.júní 2026
Pressan

Þetta er ástæðan fyrir að flugfreyjur nota rauðan varalit

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rauður varalitur flugfreyja er eitt þekktasta stílmerki fluggeirans. Það er ákveðin ástæða fyrir að flugfreyjurnar nota rauðan varalit og skýringin er ekki alveg eins einföld og margir kunna að halda.

Hluti af skýringunni er öryggi. Heather Poole, sem starfaði sem flugfreyja í 20 ár og skrifaði bókina „Cruising Attitude“ segir að sterkur rauður varalitur hafi orðið fyrir valinu af praktískum ástæðum.

Farþegarnir eiga nefnilega auðveldara með að lesa varahreyfingar flugfreyjanna ef mikill hávaði, reykur eða öngþveiti ríkir um borð.

„Við urðum alltaf að vera með hann,“ sagði hún að sögn Reader‘s Digest.

En ekki eru allar flugfreyjur sammála Poole um þetta. Reader‘s Digest hefur eftir Sydney Anisitine, sem er reynd flugfreyja, að hún hafi aldrei heyrt að þetta sé ástæðan. Hún sagðist frekar hallast að því að ástæðan sé markaðssetning, að flugfreyjurnar líti allar eins út og skýrt og fagmannlegt yfirbragð.

Þessi skýring fellur vel við það hvernig mörg alþjóðleg flugfélög vinna með útlit starfsfólks sem hluta af vörumerkinu. Má þar nefna Emirates flugfélagið sem er þekkt fyrir mjög  ákveðin stíl þar sem rauður varalitur er hluti af heildarútliti flugfreyjanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu

Reyndi að sleppa undan réttvísinni með því að fela sig inni á salerni einkaþotu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“

Hjúkrunarfræðingur sakfelldur fyrir ofbeldi gegn níu börnum – „Ég ætlaði aldrei að meiða börnin ykkar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu

Höfðar mál gegn skemmtiferðaskipi og krefst bóta eftir að hafa dottið um rafskutlu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar

Harmleikur þegar tvær systur, 5 og 8 ára, fundust látnar
Pressan
Fyrir 4 dögum

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn

FBI birtir nýjan lista yfir eftirlýsta glæpamenn
Pressan
Fyrir 4 dögum

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND

Eftirför lögreglu endaði með veltu – 4 mánaða barn kastaðist úr bíl MYNDBAND