fbpx
Miðvikudagur 03.júní 2026
Fókus

Guðrún og Sigurður selja í Gnoðarvogi – „Ég held að ég sé íhaldssöm“

Ragna Gestsdóttir
Miðvikudaginn 3. júní 2026 08:19

Guðrún Hálfdánardóttir. Mynd: RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Guðrún Hálfdánardóttir blaðamaður á RÚV og Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður hafa sett íbúð sína við Gnoðarvog á sölu.

Íbúðin er 125 fm á 2. hæð í húsi sem byggt var árið 1958.

Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, borðstofu og stofu með stórum gluggum, baðherbergi og fjögur svefnherbergi, þar af eitt þeirra utan íbúðar sem hefur verið nýtt sem unglingaherbergi.

„Ég held að ég sé íhaldssöm. Að minnsta kosti skipti ég sjaldan um starf og húsnæði og ég held að það hafi verið mín gæfa að starfa við það sem mér finnst skemmtilegt og búa í dásamlegri íbúð í Vogahverfinu í 24 ár. Í dag eru 30 ár síðan ég hóf störf á Morgunblaðinu sem blaðamaður og þar starfaði ég á bæði blaði og mbl næstu 25 árin. Í ágúst eru 5 ár síðan ég hóf störf á Rás 1 og fyrir allt þetta er ég þakklát. Síðustu vikur hef ég verið í leyfi frá hefðbundnum störfum og við rannsóknir í Kaupmannahöfn. Afraksturinn verður á dagskrá Rásar 1 síðar á árinu. En þá að húsnæðinu. Við Sigurður Árni settum íbúðina okkar á sölu áður en ég fór út en ákváðum að bíða með opið hús þar til ég væri komin heim. Þannig að ef þið eruð að leita að dásamlegri íbúð fyrir fjölskyldu þá er opið hús í Gnoðarvoginum á mánudag,“

segir Guðrún um söluna í færslu á Facebook.

Nánari upplýsingar um eignina má finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“

Netverjum gróflega misboðið yfir steypiboðinu sem Bonnie Blue ætlar að halda – „Getur einhver hringt í barnavernd?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur

Sting er með kenningu um hvaðan eitruð karlmennska kemur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök

Nicolas Cage breytti löglega um nafn – Ástæðan er sérstök
Fókus
Fyrir 4 dögum

Farþegi gagnrýndur harðlega vegna þess sem hann gerði í flugi – Sjáðu myndina

Farþegi gagnrýndur harðlega vegna þess sem hann gerði í flugi – Sjáðu myndina
Fókus
Fyrir 6 dögum

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína

Gríðarlegar afleiðingar eftir að hann neitaði að kyssa mótleikkonu sína
Fókus
Fyrir 1 viku

Samþykkti tryllta fantasíu eiginkonunnar en það endaði í martröð

Samþykkti tryllta fantasíu eiginkonunnar en það endaði í martröð