
Myndbönd sem sýna dularfulla menn klifra upp úr holræsum New York-borgar hafa vakið gríðarlega athygli og nú hefur lögreglan látið málið til sín taka. Lögreglan sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem fram kom að almenningi stafi ekki ógn af þessum dularfullu holræsamönnum.
Á myndbandinu má sjá hópa manna, sem ekki tengjast framkvæmdum á vegum hins opinbera, klifra upp úr holræmum nokkurra hverfa í Brooklyn. Mun þetta hafa átt sér stað í síðustu viku.
Lögreglan er nú að vinna með þá kenningu að þessi hópur sé að kemba holræsakerfið í leit að verðmætum sem mögulega hafi endað í skólpinu.
„Til að tryggja að almenningi stafi engin ógn af þessu sendi lögreglan í New York sérþjálfaða viðbragðsaðila niður í skólpkerfið til að ganga úr skugga um að þessir einstaklingar hefðu ekki skilið neitt vafasamt eftir sig – ekkert slíkt fannst. Umhverfisverndardeild borgarinnar, sem sér um skólpkerfið, fór einnig þangað niður og fann, að því er virðist, engar skemmdir á búnaði.“
Á einu myndbandinu, sem er tekið klukkan 2 að nóttu til á föstudaginn, má sjá mann í hvítri skyrtu og stuttbuxum lyfta holræsaloki. Eftir að lokinu var lyft komu sjö menn upp úr holræsinu en allir virtust þeir klæddir samfestingum eða hlífðarfatnaði. Mennirnir skiptu svo snögglega yfir í önnur föt.
Á öðru myndbandi má sjá mann lyfta holræsaloki á umferðarþungri götu í Brooklyn. Upp klifrar maður í rauðum bol og á eftir honum koma sex aðilar til viðbótar. Að minnsta kosti þrír þeirra virðast halda á skóflu og allir virðast vera með vasaljós á höfðinu.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins, en málið þykir nokkuð dularfullt enda liggur ekki fyrir hvað þessir aðilar voru að gera í holræsinu. Margir spyrja því á samfélagsmiðlum: Hvað er eiginlega í gangi?
🚨 ALARMING!! Surveillance footage captured two separate groups of men illegally entering and exiting New York City sewer manholes in Brooklyn overnight, carrying tools and gear — No arrests have been made@FBIDirectorKash @FBI @DHSgov #PublicSafety #NationalSecurity pic.twitter.com/NSSTAni2yt
— Brandon Tatum (@TheOfficerTatum) June 1, 2026
Another group of people seen going into a manhole in queens NY .
What is going on ? https://t.co/o3aCjimtSH pic.twitter.com/qYMr8YhKXk
— Leeroy Johnson (@LeeroyPress) June 1, 2026