
Hin látnu eru Dmitri Doncev, 45 ára hjúkrunarfræðingur, eiginkona hans Ecaterina Doncev, 44 ára hárgreiðslukona, og börn þeirra, Emily og Mark. Einnig lést 25 ára kona, Priscilla Mafalda frá Massachusetts, í slysinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð slysið um klukkan 2:35 aðfaranótt föstudags á Interstate 95 hraðbrautinni í Stafford-sýslu í Virginíu. Langferðabifreið ók á Chevrolet Suburban-jeppa sem síðan skall á Acura-bifreið fjölskyldunnar. Nokkrir aðrir slösuðust í slysinu, þar á meðal einn einstaklingur sem var um tíma í lífshættu.
Ökumaður rútunnar, Jing S. Dong, 48 ára frá Staten Island í New York, hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Saksóknarar segja að nægar vísbendingar séu um að hann hafi ekið með refsiverðu gáleysi.
Rannsakendur telja að rútan hafi verið á miklum hraða þegar áreksturinn varð. Tom Chapman, stjórnarmaður hjá bandarísku samgönguöryggisstofnuninni NTSB, sagði að allt benti til þess að hemlun hefði verið lítil eða engin fyrir áreksturinn miðað við hraða og umfang tjónsins.
Doncev-hjónin fluttu til Bandaríkjanna frá Moldóvu árið 2008 og settust að í Greenfield í Massachusetts. Dmitri starfaði sem hjúkrunarfræðingur við Holyoke-sjúkrahúsið en Ecaterina hafði undanfarna daga unnið að undirbúningi brúðkaupsins, meðal annars með því að baka eftirrétti fyrir veisluna.