fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Verður fólk hamingjusamara ef það stundar oft kynlíf?

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 21:30

Verður fólk hamingjusamara við að stunda mikið kynlíf?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvikmyndum og sjónvarpsþáttaröðum sjáum við oft að persónurnar eru óhamingjusamar því þær stunda of lítið kynlíf að eigin mati. Þar með er okkur sagt að meira kynlíf muni sjálfkrafa þýða hamingjusamara fólk. En er þetta rétt? Verður fólk hamingjusamara við að stunda oft kynlíf?

Félagsfræðingar og sálfræðingar hafa rannsakað þetta árum saman. Og hver er niðurstaða þessara rannsókna? Hún er ekki svo einföld.

Niðurstöður sumra rannsókna sýna skýr tengsl á milli hversu oft fólk stundar kynlíf og hversu ánægt það er með líf sitt. Til dæmis fylgdust vísindamennirnir David Blanchflower og Andrew Oswald með tæpega 16.000 fullorðnum og komust að því að þeir sem stunduðu oftar kynlíf voru hamingjusamari.

Þeir komust að því að það skipti miklu hvort fólk stundaði kynlíf einu sinni í viku eða einu sinni í mánuði. Þeir sem stunduðu kynlíf einu sinni í viku voru hamingjusamari. Þetta fólk var ekki eins stressað, fannst það eiga í nánari tengslum við maka sinn og náði betri árangir á öðrum sviðum, til dæmis í vinnunni.

Önnur svipuð rannsókn, þar sem 25.000 manns tóku þátt, leiddi í ljós að það að stunda reglulegt kynlíf tengdist aukinni vellíðan og hamingju, sérstaklega þegar fólk stundaði kynlíf einu sinni í viku. Það vakti sérstaka athygli að það að stunda kynlíf oftar en það gerði fólk ekki hamingjusamara.

Herbert Meltzer rannsakaði þetta einnig og komst að því að pör, sem stunduðu oft kynlíf, voru sáttari við ástarsamband sitt og fannst þau hamingjusöm. Kynlíf getur skapað meiri tilfinningalega nánd sem eykur hamingjutilfinninguna.

En það eru líka til rannsóknir sem sýndu allt aðra niðurstöður. George Loewenstein bað til dæmis pör um að breyta kynlífshegðun sinni. Helmingur þátttakendanna var beðinn um að tvöfalda fjölda samfara. Niðurstaðan var að það var ekki ávísun á meiri hamingju. Í sumum tilfellum leiddi það meira að segja til minni nautnar og minni kynlífslöngunar.

Aðrir hafa uppgötvað að gæti kynlífsins eru mikilvægari en magnið. Fólk, sem stundaði kynlíf sjaldnar en var ánægðara með gæði þess, var hamingjusamara en þeir sem stunduðu oftar kynlíf en voru um leið ekki eins ánægðir með gæði þess.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman