
Donald Trump Bandaríkjaforseti hellti sér yfir Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, með blótsyrðum og svívirðingum í símtali þeirra á mánudaginn. Frá þessu greina bandarískir fjölmiðlar.
Trump mun hafa verið ævareiður í kjölfar þess að Írani hótaði að slíta friðarviðræðum vegna árása Ísraelshers á Hezbollah-samtökin í Líbanon. Ræddu leiðtogarnir tveir saman í síma og greindi Trump í framhaldinu opinberlega frá því að samkomulag hefði náðst um vopnahlé að hluta milli Ísraels og Hezbollah. Trump sagði að símtal hans við Netanyahu hefði verið mjög farsælt.
Bandarískir miðlar greina þó frá því að á bak við luktar dyr hafi Trump hreinlega öskrað á Netanyahu og kallað hann snarbrjálaðan.
„Þú ert geðveikur, fjandinn hafi það. Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig. Ég er að bjarga á þér rassgatinu. Allir hata þig núna. Allir hata Ísrael út af þessu,“ mun forsetinn hafa sagt að sögn Axios sem hefur þetta eftir tveimur ónefndum embættismönnum.
Trump mun hafa verið sótillur og spurt Netanyahu hvað í fjandanum vakti fyrir honum en forsetanum mun hafa verið gróflega misboðið yfir árásum Ísraels í Líbanon þar sem saklausir borgarar hafa fallið. Ísrael hafi sprengt heilu byggingarnar upp bara til að eltast við einn tiltekinn leiðtoga Hezbollah. Trump mun hafa litið á þetta sem stigmögnun átakanna sem væri til þess fallin að gera útaf við friðaviðræður Bandaríkjanna og Írans.
Forsetinn hafi ekkert dregið undan í símtalinu og hafi Netanyahu á endanum gefið undan og samþykkt vopnahlé.