fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Þess vegna má kötturinn þinn aldrei drekka þetta

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 12:30

Mynd: Villikettir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum sjást kettir oft drekka mjólk úr skál og margir halda að kettir geti eða jafnvel eigi að drekka mjólk. En vissir þú að þannig er það ekki? Mjólk getur nefnilega verið hættuleg fyrir ketti.

Julia Henning, hjá dýralæknadeild háskólans í Adelaide, segir að flestir kettir séu með mjólkuróþol. Þeir drekki auðvitað mjólk af spena þegar þeir eru kettlingar en um leið og þeir hætti því eigi að forðast að gefa þeim mjólk og skiptir þá engu máli hversu mjög þeir elska mjólk.

Henning sagði í samtali við The Conversation að þegar kettlingar hætti að drekka móðurmjólkina, sem gerist venjulega þegar þeir eru 6 til 12 vikna, þá hætti þeir að framleiða ensímið laktasi en það er nauðsynlegt til að þeir geti melt laktósann í mjólk.

„Ef þeir fá kúamjólk eftir þetta, sem inniheldur meiri laktósa en móðurmjólkin, þá geta þeir fengið uppþembu, magaverki, uppköst og niðurgang,“ sagði hún.

Hún sagði að kettir, sem fá reglulega mjólk eða aðrar mjólkurvörur, séu í enn meiri hættu á að fá þessi einkenni og þetta geti jafnvel verið lífshættulegt því krónískur niðurgangur geti valdið ofþornun og vannæringu.

Nú hugsar þú kannski með þér að það skaði nú ekki að gefa kettinum örlitla mjólk öðru hvoru en Henning sagði að það sé alls ekki rétt.

„Nei, mjólkurvörur eru einfaldlega ekki náttúrulegur hluti af mataræði katta. Þrátt fyrir að þeim finnst þetta örugglega gott á bragðið, getur mjólk valdið óþægindum og heilsufarsvandamálum, svo það er best að sleppa henni alveg,“ sagði hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman