
Denzel Dumfries, leikmaður Inter, hefur samkvæmt Fabrizio Romano náð samkomulagi við Real Madrid.
Real Madrid þarf aðeins að greiða 20 milljónir evra fyrir Hollendinginn vegna klásúlu í samningi hans við ítalska félagið.
Það hefur einnig verið fjallað um áhuga Liverpool á Dumfries en hann vildi alltaf fara til Real Madrid.
Inter keypti Dumfries frá PSV árið 2021 fyrir tæpar 15 milljónir evra og hefur hann reynst félaginu afar vel.
Samkvæmt ítölskum miðlum er Marco Palestra hjá Atalanta efstur á lista Inter yfir mögulega arftaka Dumfries.
🚨💣 EXCLUSIVE: Denzel Dumfries to Real Madrid, HERE WE GO! ⚪️🇳🇱
Deal in place and all agreed with Dutch right back to join Real Madrid from Inter, Spanish club will trigger €20m release clause.
Dumfries has accepted Madrid, deal closed tonight and formal steps to follow. pic.twitter.com/UghisoJwmh
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 2, 2026