fbpx
Sunnudagur 14.júní 2026
Fréttir

Segir Írisi hafa orðið fyrir svívirðingum vegna rangra ásakana – „Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 2. júní 2026 17:02

Íris Róbertsdóttir. mynd/Tryggvi Már

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Páll Magnússon fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja vísar ásökunum fyrrverandi starfsmanns bæjarins í garð Írísar Róbertsdóttur bæjarstjóra alfarið á bug. Ásakanirnar séu einfaldlega rangar en vegna þeirra hafi Íris orðið að ósekju fyrir persónulegum svívirðingum.

Páll nefnir ekki viðkomandi aðila á nafn en afar líklegt er að um sé að ræða Lindu Rós Sigurðardóttir sem fullyrti í grein á Vísi og síðan í kjölfarið í viðtali við sama fjölmiðil að Írís hefði fyrst rekið hana úr starfi hjá Vestmannaeyjabæ. Sagði Linda bæjarstjórann síðan hafa tekið sig til og séð til þess að hún hafi verið einnig rekin úr starfi hjá verkfræðistofunni Eflu. Taldi Linda ljóst að það sem einna helst hefði hvatt Írisi til þessar hegðunar í hennar garð hafi verið þátttaka Lindu í starfi Miðflokksins í Vestmannaeyjum. Íris neitaði því í samtali við Vísi að hafa hlutast til um starf Lindu hjá Eflu í Eyjum.

Ekki rekin

Páll Magnússon bauð sig ekki fram til endurkjörs í kosningunum um miðjan maí en hann er enn forseti bæjarstjórnar þar sem nýkjörin bæjarstjórn hefur ekki tekið formlega við.

Hann segir það rangt að Linda hafi verið rekin úr starfi hjá bænum. Hún hafi sjálf sagt upp en raunar séu átta ár síðan starfsmanni í ráðhúsi bæjarins, þar sem Linda starfaði á umhverfis- og skipulagssviði, hafi verið sagt upp.

Það sé einnig rangt að Íris hafi séð til þess að Linda yrði rekin úr því starfi hjá Eflu sem hún tók við eftir að starfi hennar hjá bænum lauk:

„Þetta er rangt. Aðspurður sagði framkvæmdastjóri Eflu þetta í svari til bæjarins: „Ég get staðfest að bæjarstjóri hafði ekki afskipti af ákvörðun um ráðningu eða starfslok nokkurs starfsmanns EFLU“.

Páll segir það einnig rangt sem Linda haldi fram að Íris hafi séð til þess að bærinn beindi minni viðskiptum til Eflu en fyrirtækið gaf upp þá ástæðu fyrir uppsögn Lindu að verkefnastaða fyrirtækisins í Eyju hefði versnað:

„Þetta er rangt. Viðskipti Vestmannaeyjabæjar við Eflu minnkuðu ekki heldur jukust stórlega á þeim tíma sem hér um ræðir.“

Svívirðingar

Páll segir að þar af leiðandi sé engin innistæða fyrir þeim svívirðingum sem beint hafi verið að Írisi í kjölfar ásakana Lindu:

„Þessar röngu staðhæfingar urðu síðan grunnurinn að fáheyrðri samfélagsmiðlaárás nokkurra einstaklinga að starfsheiðri og æru bæjarstjórans í Vestmannaeyjum. Orðalepparnir og ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar – en ættu að vera okkur öllum umhugsunarefni um tilgang og eðli samfélagsmiðla. Ekki einu sinni kjörnir fulltrúar – nú eða ráðnir bæjarstjórar – ættu að þurfa að sitja undir persónulegum svívirðingum af þessu tagi.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“

Máni baunar á meðvirka „sjálfumglaða hægrisinnaða hælasokka“: „Ekki gert samfélaginu neinn greiða“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka

Hafna því að draga þjónustuskerðingu við Grímsey til baka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“

Atli segir Samfylkinguna senda kjósendum sínum fingurinn: „Grátlegt að fylgjast með því“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar

Aðalmeðferð hafin í Edition-málinu: Óhugnanlegar lýsingar Ming á dauða dóttur sinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“

„Hví sjá þau flísina í auga forystusveitarinnar en ekki bjálkann í eigin/ESB augum?“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi

Krefjast þess að fá að hafa sjö íbúðir í einbýlishúsi
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið

Mannréttindadómstóllinn vísar málum lyfjafræðings og þolanda sem kærðu íslenska ríkið
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“

Margrét segir að lögmanni hennar hafi verið hótað – „Þetta er háttsett fólk sem er að hafa samband við minn lögmann og hóta honum“