fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Pressan

Leigusalinn ætlaði að losna við leigjandann – hvað sem það kostaði

Pressan
Sunnudaginn 31. maí 2026 16:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hrollvekjandi mál er nú komið upp í San Fransisco en þar ætlaði auðugur leigusali að losna við leigjanda sinn – hvað sem það kostaði.

Leigusalinn, Phillippe Chagniot, er tannlæknir á eftirlaunum og ætlaði sér að selja fasteign fjölskyldunnar, sem er metin á um 164 milljónir. Til þess að geta selt eignina þurfti hann þó að losna við leigjandann. Samkvæmt húsaleigulögum í San Fransisco þurfa leigusalar að bjóða leigjendum peningagreiðslu þegar bera á þá út þrátt fyrir gildan leigusamning. Stundum hlaupa slíkar greiðslur á milljónum. Leigjandinn, hinn 58 ára gamli Eric Bigone, þekkti rétt sinn og hafði ráðið lögmann til að gæta hagsmuna sinna í samningaviðræðunum. Deilur leigusalans og leigjandans voru hatrammar og örvænting Chagniot var töluverð eftir að eiginkona hans greindist með krabbamein. Hann vildi söluandvirði eignarinnar og hann vildi það strax.

Það fór á endanum svo að fyrrum tannlæknirinn mætti glímuklæddur að eigninni snemma morguns þar sem leigjandinn, Eric Bigone, var að leggja af stað í vinnuna. Chagniot kveikti í bíl fyrir utan í von um að lokka leigjandann út. Síðan falldi hann sig.

Þegar Bigone kom út læddist Chagniot aftan að honum, skaut hann í höfuðið og hjólaði svo af vettvangi eins og ekkert hefði í skorist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 17 klukkutímum

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina

Barnamúmían dularfulla – Fundu dánarorsökina
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Aukin glæpatíðni á Tenerife

Aukin glæpatíðni á Tenerife
Pressan
Í gær

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin

4 ára drengs saknað – Ári síðar fannst taska grafin
Pressan
Í gær

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“

Gríðarlegt mannfall – „Mjög erfið staða fyrir Pútín“
Pressan
Í gær

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig

Finnst þér gaman að lesa? – Þá eru vísindin með góðar fréttir fyrir þig
Pressan
Í gær

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum

Svona getur B12-vítamínskortur komið fram í munninum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka

Geimfarar yfirgáfu Alþjóðlegu geimstöðina vegna súrefnisleka
Pressan
Fyrir 2 dögum

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman

Mikið reiði í Frakklandi eftir morð 11 ára stúlku – Sá grunaði ekki kallaður til skýrslutöku mánuðum saman