
Íran hefur slitið öllum friðarviðræðum við Bandaríkin vegna stríðsreksturs Ísraels í Líbanon. Frá þessu greindi ríkismiðillinn Tasnim í gær, en í fréttinni kom fram að Íransstjórn líti svo á að Bandaríkin hafi brotið gegn vopnahléi. Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist lítið kippa sér upp við þetta en hann sagði í samtali við CNBC í gær að viðræðurnar hafi hvort eð er verið orðnar langdregnar og leiðinlegar. Trump hefur vikum saman haldið því fram að Íran væri tilbúið til að ganga til samninga við Bandaríkin til að ljúka stríðinu.
„Mér er sama þótt þeim sé lokið, til að vera hreinskilinn, mér er alveg sama,“ sagði forsetinn en aðeins eru fáeinir dagar síðan Trump og félagar hans úr ríkisstjórninni lýstu því yfir að stutt væri í land í viðræðunum og að til stæði að opna Hormússundið.
„Ef þeim er lokið, þá er þeim lokið. Ef þeim er ekki lokið, vitið þið, mér finnst þær hafa tekið of langan tíma. Hreint út sagt fannst mér þær orðnar mjög leiðinlegar.“
Þrátt fyrir þetta var komið annað hljóð í forsetann eftir því sem leið á daginn en hann sagði í færslu á Truth Social eftir viðtalið að viðræður ættu sér enn stað og að gangurinn í þeim væri hraður. Trump vildi meina að hann hefði átt gott símtal við hryðjuverkasamtökin Hezbollah sem hafi samþykkt að gera hlé á átökunum. „Ísrael ræðst ekki á þá og þeir ráðast ekki á Ísrael,“ skrifaði forsetinn.
Síðan ræddi forsetinn við NBC-fréttastofuna og sagðist þá ekki hafa fengið skýr skilaboð frá stjórnvöldum í Íran um að viðræðum hefði verið slitið en forsetinn tók fram að hann hefði ekkert á móti því að setja viðræðurnar í salt.
„Mér finnst við hafa blaðrað alltof mikið ef þú vilt vita sannleikann. Ég held að þögnin væri góð og hún gæti staðið yfir lengi.
Í nótt greindu Líbanir frá því að Hezbollah hefði fallist á kröfur Trumps um að hætta árásum á Ísrael en krefjast á móti algers vopnahlés.