
Buckinghamhöll mun hafa fengið sönnunargögn um að fyrrverandi Bretaprins Andrew hafi deilt trúnaðarupplýsingum frá stjórnvöldum þegar hann var viðskiptasendiherra fyrir sex árum.
Samkvæmt frétt BBC sem birt var á laugardaginn voru 30.000 tölvupóstar með upplýsingum um að Andrew deildi trúnaðarupplýsingum sendir árið 2020 til Lord Chamberlain, æðsta embættismann konungsfjölskyldunnar. Tölvupóstarnir voru fengnir frá persónulegum viðskiptatengilið Andrews.

Andrew var handtekinn í febrúar síðastliðnum á 66 ára afmælisdaginn sinn grunaður um brot í opinberu starfi fyrir að hafa sent trúnaðarskjöl til hins látna kynferðisglæpamanns Jeffreys Epsteins. Andrew hefur neitað öllum ásökunum gegn sér.
Jess Michaels, ein af þolendum Epsteins, sakaði Buckinghamhöll um að vernda Andrew, í samtali við Telegraph.
„Fyrir sex árum vissi höllin að Andrew væri ekki bara vandamál; hann gæti átt yfir höfði sér sakamálarannsókn. Og þeir sátu á því,“ sagði Michaels.

Michaels, fyrrverandi dansari sem Epstein beitti kynferðisofbeldi árið 1991 þegar hún var 22 ára gömul, varði einnig hina látnu Virginu Giuffre. Giuffre, sem sakaði Epstein og Andrew um kynferðisofbeldi þegar hún var undir lögaldri, tók eigið líf í apríl 2025.
Michaels sagði við Telegraph: „Að vernda hann þýddi að efast um hana. Virginia Roberts Giuffre sagði sannleikann og hún lifði ekki það að sjá þau viðurkenna það,“ sagði Michaels. „Það brýtur hjarta mitt og það ætti að brjóta hjarta allra. Þetta er það sem stofnanir gera. Þær vernda valdamikla menn og láta þá sem þær skaða bera það.“

Buckinghamhöll sagði við BBC: „Þar sem rannsókn lögreglu stendur yfir varðandi Mountbatten-Windsor er ekki hægt að tjá sig um þessi mál.“
Buckinghamhöll sendi frá sér yfirlýsingu frá Karli konungi um handtöku Andrésar í febrúar skömmu eftir að fréttirnar bárust.
„Ég hef með djúpstæðum áhyggjum fengið fréttirnar af Andrew Mountbatten-Windsor og grunsemdum um misferli í opinberu embætti,“ sagði Karl. „Nú fer fram sanngjörn og rétt málsmeðferð þar sem þetta mál er rannsakað á viðeigandi hátt og af viðeigandi yfirvöldum,“ hélt hann áfram. „Eins og ég hef áður sagt, njóta þeir fulls stuðnings okkar og samvinnu.“